notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Þú og þeir (Sókrates)

Beathoven

Þú og þeir (Sókrates)

Ég dái Debussy
Ég dýrka Tjækovský
Og Einar Ben og Beethoven
Og Gunnar Thoroddsen
Ég tilbið Harold Lloyd
Ég tilbið Sigmund Freud
Og John Wayne og Mark Twain
Og þig og Michael Caine

Syngjum öllum Sókrates
Sálarinnar Herkúles
Um alla þá sem allir þrá
Og allir dýrka og dá

Ég syng um Kólumbus
Og Sólon Islandus
Og Mendelssohn og Paul og John
Og Jón Pál Sigmarsson

Syngjum öllum Sókrate
Sálarinnar Herkúles
Um alla þá sem allir þrá
Og allir dýrka og dá

Hej, syngjum öllum Sókrates
Sálarinnar Herkúles
Um þá sem spá en einkum þá
Sem fallnir eru frá
Dýrka og dá

Tracker