notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Höndin Sem Veggina Klórar

Skálmöld

Höndin Sem Veggina Klórar

tunglskinsbjört nóttin er tökum náðir
tveir liggja bræður og sofa báðir
móðirin vakir og ljósið líður
lognið er forleikur þess sem bíður

fjórtán á bænum, við brunnum inni
börnin í fangi á ömmu sinni
fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar
lítil er höndin sem veggina klórar

mannleysa og ber að baki
bræðralaus og einskis maki
lögðum eld að þínu þaki
fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar
lítil er höndin sem veggina klórar

haf- er yfir horfði örn
herinn sá við bæjartjörn
saklaus inni brunnu börn
fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar
lítil er höndin sem veggina klórar

sonur minn vaknaði aldrei aftur
ekki komst dóttir mín litla á legg
brunninn var fótur og brostinn kraftur
bærinn féll saman og á mig raftur
þá á mig sóttu loks þvogl og órar
þarna ég dó undir baðstofuvegg
fleygaðar dyrnar og lokaðir ljórar
lítil er höndin sem veggina klórar

sviðnar hönd og hold
hitnar undir mold
eldur brennir bein
bræðir óskastein

sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn
suðar yfir mý og litar ferskan blæinn
ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna
enginn segir frá og hvers er þá að sakna?

sólin rís á ný og sýnir okkur bæinn
suðar yfir mý og litar ferskan blæinn
ekkert líf að sjá og aldrei mun ég vakna

enginn segir frá
enginn segir frá
enginn segir frá

sviðnar hönd og hold
hitnar undir mold
eldur brennir bein
bræðir óskastein

sviðnar hönd og hold
hitnar undir mold
eldur brennir bein
bræðir óskastein

Discografia Tracker