notícias musicais

top 13 artistas

top 13 musicas

Confira a Letra Að Sumri

Skálmöld

Að Sumri

allt þar féll í ljúfa löð
landið friðsælt, gjöful tröð
bændur, hjú og börnin glöð
beið ein þar snót og þagði
friður geymdi fold og menn
fimm ár liðu, nokkur enn
land undir fót þá lagði
land undir fót þá lagði

enginn sína ævi veit
áði hún í mývatnssveit
áfram yfir landið leit
lengra ég þarf að halda!
ung hún steig á austurland
eygði skóg og svartan sand
illt skal með góðu gjalda
illt skal með góðu gjalda

sjónarspil við dalsins dyr
dimmu kljúfa sólstafir
heitböndin munu halda
sitthvað slæmt í lofti lá
lamdi brimið klettatá
illt skal með góðu gjalda
ef fjendur af gerpinum sjást
goðin þeim hjálpi sem finnast og nást

enga gísla!
enga gísla!

móti skal tekið af mikilli heift
mótherjum bannað sem vinum er leyft

þórunn gaf austrinu bein sín og blóð
beið þess að fylgja í vættanna slóð
færum þeim þakkir sem fórnuðu sér
fóru gegn ógnar- og óvinaher

fuglarnir syngja og fljótið er tært
fjögur að nóttu og sólin skín skært
engin er hindrun og allt virðist fært
ekkert fékk þórunni bugað

lækurinn gljáfrar er líður hann hjá
landið er allt ósköp fallegt að sjá
barnið því gleymdi sem bjátaði á
bara að það hefði dugað

sumarið kveikir í bróstunum bál
brosir og fagnar hver einasta sál
mundu að tileinka mönnunum skál
mikið við öll höfum þolað

miðnætursólin er miðpunktur alls
móarnir loga frá ströndu til fjalls
kveiknaði ást milli hennar og hals
henni fékk ekkert út skolað

Discografia Tracker